Bílastæði og ferðavagnar

Bílastæði og ferðavagnar

Hvað viltu láta gera? Það væri frábært ef það væru útbúin bílastæði í útjöðrum eða þar sem stór tún eru innan hverfis fyrir ferðavagna sem eru að yfirtaka öll bílastæði í hverfunum. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að geta lagt bílnum mínum við húsið mitt allan ársins hring.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun bílastæða er stefnumál sem stöðugt er til umfjöllunar og úrvinnslu. Skipulagsferli hugmyndarinnar er of langt fyrir tímaramma verkefnisins sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Galin hugmynd að taka græn svæði undir bílastæði hvað þá stæði undir ferðavagna. Fólk þarf bara að hafa stæði fyrir þessi tæki þegar það kaupir. Borgin á ekki að græja það fyrir fólk

Vantar tilfinnanlega bílastæði við engjasel ,seljabraut . Vonandi sér núverandi meirihluti sér fært um að koma þessu í lag . Takk fyrir ,Kristján .

Menn sem eru með tjaldvagna og þess háttar tæki, ættu bara að geyma þau inní bilskýlunum. Það er ekki í verkahring Reykjavíkurborgar að útbúa stæði fyrir þessi tæki, né er ástæða til að fjölga bílastæðum útaf tilveru þessara tækja. Margir geyma þau inná sameiginlegum görðum við húsin.

Ekki eðlilegt að "borgin" útbúi stæði fyrir ferðavagna/hjólhýsi. Þeir srm kaupa slíkt verða að eiga eða leigja pláss undir gripina.

Það má alveg fjölga bílastæðum í borginni allri því hvað sem borglínu líður þá á bílum bara eftir að fjölga í borginni. Ef fólki á höfuðborgarsvæðinu fjölgar miðað við núverandi spá sem er ca 30þús til ársins 2040 þá segir það sig sjálft að þetta fólk fer ekki allt í strætó. Þannig að þið sem sitjið í núverandi meirihluta í borginni, hættið að taka bílastæði af borgarbúum eins og þið eruð að gera með því að fjarlægja öll vörubílastæði úr Breiðholti og leyfið fólki sem á ferðavagna að legga þeim.

alveg hrikalega vond pæling, það vantar fleiri tún og græn svæði, færri bílastæði. (las einhversstaðar að 50% af reykjavík sé malbik...!) ekki kaupa hjólhýsi ef þú átt ekki pláss fyrir það!

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information