Lækka hámarkshraða við Selásskóla

Lækka hámarkshraða við Selásskóla

Hvað viltu láta gera? Lækka hámarkshraða í 15km/klst í Viðarási og part af Selásbrautar sem er við skólann. Hvers vegna viltu láta gera það? Börn fara misvarlega út á götuna á leið í skóla og nú er mikið myrkur á morgnana þegar skólahald hefst. Gangbrautin við rauðaborg er sérstaklega hættuleg. Börn eiga það til að þjóta niður brekkuna hjólandi eða á hlaupahjólum beint yfir gangbrautina.

Points

Mætti bæta við að Þingás ,Viðarás og Selásbraut frá Brekknaás að Skógarási verði líka 15km svæði og jafnvel settar upp frekari hraðahindranir eða hraða koddar

Mætti líka banna að bílar séu að leggja á götunni við skólan/Viðarás. oft mjög erfitt að sjá gangandi börn/vegfarendur þegar bílar/hjólhýsi eru lögð á götunni.

Það væri frekar að íbúar hægi einfaldlega á sér þegar þeir aka um göturnar. Það eru í lang flestum tilfellum íbúar sem aka hratt í hverfinu sínu. Það þarf að bæta lýsingu við gagnbrautina og stýra frekar aðgangi út á gangbrautina, við götuna, þannig að ekki sé hægt að fara beint út af stígnum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information