Göngubrú út í Viðey

Göngubrú út í Viðey

Hvað viltu láta gera? Ég legg til að við skoðum þann möguleika að setja göngubrú út í Viðey. Einhver sem væri nógu stór til þess að taka gangandi og hjólandi fólk og kannski þjónustubíla eða fjórhjól. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er kominn tími til þess að huga að byggð eða aðstöðu sem við viljum hafa í Viðey. Eins og er þá er bara Viðeyjarferjan sem einokar bryggjuna þar og er svo til útilokað fyrir aðra að koma að eynni þeim megin. Austan megin gerði Snarfari hér á árum áður, bryggjustubb sem var nothæfur í nokkur ár. Kannski má setja brú frá þeim stað í land. Viðeyjarstofa er gamalt og virðulegt hús, núna, en ég man þá tíð sem þetta var hesthús fullt af hestaskít að það var ekki hægt að komast inn í húsið. Núna er Viðeyjarstofa notuð nokkra daga á ári og meiri traffík þýddi betri nýting. Það eru líka fullt af tóftum í austurenda eyjunnar sem væri hægt að nota og byggja yfir. Ég myndi vilja sjá byggð eins og er td. á kastalahæðinni í Prag sem er kennd við gullgerðarmenn.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins. Hugmyndin fer áfram sem ábending til Skipulagsfulltrúa. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information