Lýsing í kringum Rauðavatn

Lýsing í kringum Rauðavatn

Hvað viltu láta gera? Rauðavatn er útivistarsvæði í mikilli nálægð við Reykjavík. Mikill hluti göngustígar er sameiginlegur með reiðstíg og ólýstur. Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta aðgengi allra að útivistarsvæði í nálægð við Reykjavík

Points

Þetta er ekki leið sem þjónar samgöngum, með sömu rökum ættum við að lýsa leiðina upp á Esjuna og Úlfarsfellið. Ef fólk er hrætt við myrkrið eru tugir kílómetra af upplýstum stígum sem hægt er að velja um.

Ef þetta svæði er upplýst, þá er ekki hægt að njóta þess sem náttúrulegs útivistarsvæðis. Það er einmitt hluti af töfrunum við þetta svæði að njóta þess að ganga eða skokka þar í ljósaskiptunum. Frekar væri að skilja að reiðstíga og göngustíga þarna og banna alfarið bílaumferð inni á svæðinu. Þá á maður amk ekki á hættu á að vera keyrður niður - eða koma heim útataður í hrossaskít.

Ekki lýsa þessa leið. Gott að komast úr lýsingunni og njóta náttúrunnar þannig

til að koma i vegi fyrir slýs

Rauðavatnshringurinn er tiltölulega ósnert náttúra sem er ekki auðfundin svo stutt frá höfuðborgum og óþarfi að skapa meiri ljósamengun en þegar er til staðar í borginni. Hægt er að leyfa þessu svæði að nýtast fyrir bæði þá sem vilja halda náttúrulegu myrkri á sínum göngu- og hlaupaferðum... með því að þeir sem vilja ljós geta tekið vasaljós eða höfuðljós með sér... eða nýtt VEL upplýstann Elliðaárdalinn! Óþarfi að lýsa upp ALLT umhverfi í kringum borgina :/

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í ferli annars staðar innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information