Íbúakort

Íbúakort

Hvað viltu láta gera? Taka upp gjaldtöku fyrir bílastæði í formi íbúakorts eins og er í gangi í miðbænum Hvers vegna viltu láta gera það? Til að fækka lítið notuðum og kyrrstæðum bílum/kerrum og fjölga þannig lausum stæðum í hverfinu.

Points

Það eru allt of margir bílar i Hlíðunum. Ekki veitir af að nota alla möguleika á að fækka þeim. Besta leiðin held ég sé að láta fólk finna að það kosti að nota borgarland til að geyma bílana sína í (sama held ég að gildi raunar um notkun t.d. nagladekkja, sem er því miður fáránlega algeng í Reykjavík).

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information