Salernisaðstaða í Gufunesbæ

Salernisaðstaða í Gufunesbæ

Hvað viltu láta gera? Byggja salernisaðstöðu í Gufunesbæ Hvers vegna viltu láta gera það? Það er margbúið að ræða þetta og margir sammála um mikilvægi þessa. Því hefur verið lofað að gera þetta áður en ekki staðið við það. Í Gufunesbæ skemmtilegt útivistarsvæði en hvergi hægt að komast á salerni. Sem er bagalegt fyrir fjölskyldur með börn, já og reyndar fyrir alla sem svæðið nýta. Það að hafa salernisaðstöðu á svæðinu myndi gera þetta mikið eftirsókarverðara svæði. Nú er kominn tími til að setja þetta í framkvæmd

Points

Mikilvægt að hægt sé að komast á salerni á þessu skemmtilega útivistarsvæði.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem þetta verkefni hefur nú þegar verið framkvæmt eða er á framkvæmdaáætlun. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mikilvægt að klára strax. Flott leikaðstæða en vantar salernisaðstöðu

Salerni í Gufunes Hugmyndin úr hugmyndasöfnuninni Kosningartillagan Verkhönnun 02.06.20 - verkið er í undirbúningi. 09.07.20 - búið er að bjóða út salernishúsið og jarðvinnuútboð er í vinnslu. 21.08.20 - verkið er í vinnslu. Búið að kjósa um þetta og samþykkja. Eigum við ekki að leyfa þeim að klára þetta verk áður en við eyðum púðri í þetta.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information