Sörf laug í Laugardalslaugina

Sörf laug í Laugardalslaugina

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta setja upp sörf laug í Laugardalslaug. Engin slík laug er til á Íslandi í dag en talsverður áhugi hefur myndast á sörfi hér á landi á síðustu árum. Myndin í viðhengi sýnir dæmi um hverig slík laug getur litið út. Hvers vegna viltu láta gera það? Sörf er skemmtileg tilbreyting sem gaman væri að bjóða upp í Laugardalslaug. Það er holl hreyfing og góð æfing í þokkabót. Ég geri ráð fyrir að sörf laug af þessu tagi yrði vinsæl hjá ungu fólki og túristum sem sækja laugina. Einnig gæti hún stutt við meiri áhuga á sörf íþróttinni hér á landi.

Points

Frábær hugmynd. Ég myndi klárlega nýta mér þetta.

Vantar svona. í flóruna.

Frábær hugmynd

Þetta er frábær hugmynd og þetta yrði notað mikið

Þetta er frábær hugmynd. Endilega hafa góðan heitan pott nálægt svo við sem ekki “sörfum” getum skemmt okkur við að fylgjast með

Sörf laugar eru ótrúlega skemmtilegar! Svo er um að gera að æfa íslendinga í alvöru brim. Þetta er flott byrjun!

frábær hugmynd

Góð hugmynd :D

Yes plzzz!

😁

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021 þar sem endurbætur eru fyrirhugaðar á Laugardalslaug og útisvæðinu þar á næstu árum og fer þessi hugmynd áfram sem ábending í þá vinnu. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information