Breið Gangbraut við botn Hofsvallagötu yfir á Ægisíðu

Breið Gangbraut við botn Hofsvallagötu yfir á Ægisíðu

Hvað viltu láta gera? Það er tækifæri í að nýta þau gríðar-stóru gatnamót sem eru við botn Hofsvallagötu, til þess bæði að hægja á umferð sem og að bæta aðgengi að Ægisíðu, en gangandi umferð um og að Ægisíðuna hefur stóraukist síðustu árin. Hvers vegna viltu láta gera það? Erfitt getur verið að komast yfir á Ægisíðu frá botni Hofsvallagötu, þar sem engin gangbraut eða greið leið er yfir Hofsvallagötu fyrir gangandi vegfarendur. Margoft hefur legið við stórslysi þarna, en bílar keyra stundum mjög hratt að gatnamótunum og hægja lítið á sér í beygjunum. Mikilvægt er að bæta aðgengi við þessi gatnamót.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information