Grænt útivistarsvæði í staðin fyrir bensínstöð

Grænt útivistarsvæði í staðin fyrir bensínstöð

Hvað viltu láta gera? Í Vesturbæ Reykjavíkur er erfitt að finna almenningsgarða og græn útivistarsvæði sem ekki eru leikvellir eða við sjávarsíðuna. Nóg er af bensínstöðvum um alla borg, í/og í kringum hverfið. Eiga bensínstöðvar ekki frekar heima í útjaðri hverfa heldur en í þeim miðjum? Dæmi um bensínstöð í miðju hverfi sem væri skemmtilegra að sjá sem grænt svæði væri t.d N1 við Ægissíðu. Græn svæði eru mun betur til þess fallin að auka vellíðan og lífsgæði íbúa. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að gera útivist enn aðgengilegri og meira aðlaðandi í vesturbæ Reykjavíkur.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information