Fjallahjólasvæði í Gufunesbæ

Fjallahjólasvæði í Gufunesbæ

Hvað viltu láta gera? Búa til æfingaaðstöðu fyrir fjallahjólreiðamenn. Gera braut með stökkpöllum og allskyns þrautum sem hægt er að æfa sig á. Brautin þyrfti að vera byrjendavæn og einnig gerð fyrir lengra komna. Hvers vegna viltu láta gera það? Fjallahjólasportið á Íslandi hefur stækkað stigvaxandi á síðustu 3 árum. Þannig það er tímabært að gera sérútbúna aðstöðu fyrir fjallahjólreiðafólk til þess að æfa sig á. Gufunesið er fullkominn staður fyrir þetta þar sem það er nóg af plássi. þetta myndi gera mikið bæði fyrir börn sem og fullorðna.

Points

það væri geggjað að hafa svona, allir myndu nota þetta daglega

Virkilega þarft enda mjög vinsælt sport núorðið. Og myndi nýtast fólki úr öðrum hverfum líka.

Algjör nauðsyn og hentar Gufunesið vel með sinni náttúru og hæðum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mikil aukning a fjallahjólasportinu og nauðsynlegt að fa braut i hverfið, hun verður mikið notuð.

Brautin myndi bæði nýtast börnum sem væru að leika sér í frítíma sínum en ég er viss um að það væri grundvöllur fyrir því að nota hana á hjólaæfingum líka sem myndi styðja við sívaxandi áhuga á hjólamennsku á Íslandi. Hugmyndin geriri borgina betri, skapa eitthvað nýtt, er framkvæmanleg innan eins árs og fjallar um útivist, afþreyingu (börn og fullorðnir) og bætta lýðheilsu.

Eykur hjólafærni barna og fullorðina sem skilar sér m.a. í bættar samgönguhjólreiðar

Góð hugmind enn Gufunesbær kanski ekki rétti staðurinn. Hlíðar og rætur Úlfarsfels væri kjörin staður .

Þetta er geggjuð hugmynd! og klárlega þörf fyrir

Virkileg þörf á alvöru aðstöðu fyrir jaðaríþróttafólk á Íslandi. Geggjuð hugmynd, ódýr og vel raunhæf!

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information