Hreinsa og laga göngustíga í Laugardal

Hreinsa og laga göngustíga í Laugardal

Hvað viltu láta gera? Hreinsa og laga göngustíga í Laugardal Hvers vegna viltu láta gera það? Göngustígar í Laugardal verða bókstaflega hættulegir gangandi og hjólandi þegar fræ og lauf sem falla af trjánum eru ekki fjarlægð reglulega. Göngustígarnir verða sleipir og auka hættu á að fólk detti hvort sem er á hjólum, hlaupahjólum eða gangandi. Göngustígur sem liggur frá Fjölskyldugarði yfir að Laugardalsvelli er sprunginn þar sem trjárætur ýta stígnum upp á mörgum stöðu. Brot er komið víða í malbik. Þetta mætti laga. Svæðið er vinsælt en illa hirt. Þarna þyrfti að sópa að minnsta kosti vikulega frá apríl/maí til október/nóvember.

Points

Mæli með að stígarnir verði þrifnir reglulega svo ekki skapist hætta á að fólki detti.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information