Hringbraut í stokk

Hringbraut í stokk

Hvað viltu láta gera? Grafa Hringbraut niður setja í stokk frá BSÍ og út í Ánanaust. Hvers vegna viltu láta gera það? Umferðarþungi um Hringbraut er orðinn verulegur og ein helsta tengiæð vesturbæjar og seltjarnarnes. Fyrirhuguð er veruleg uppbygging á Grandanum og vandséð hvernig flutningur á því fólki til og frá fer fram án þess að fara um Hringbraut. Nú þegar er Hringbraut inni í miðju íbúðahverfi og veruleg hætta sem skapast reglulega af umferðinni. Með því að koma umferðinni undir yfirborðið ávinnast verulega margir hlutir, samgöngur verða skilvirkari, slysahætta stórminnkar, vesturbærinn verður ein heild þar sem Hringbrautin sker hann að hluta til í sundur í dag, möguleiki gæfist á að gera nýjar byggingarlóðir ofan á stokknum og/eða skemmtileg útivistarsvæði.

Points

Frábær hugmynd, þetta þarf að gera.

Sameinar 101 og 107 í raun. Auðveldar aðgang að íþróttastarfi fyrir krakka sem búa norðan megin við Hringbraut

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þetta er mun betri lausn heldur en undirgöng fyrir gangandi vegfarendur eða göngubrýr.

Skv. skýrslu vegagerðar "Úttekt á umferðaröryggi þjóðvega á höfuðborgarsvæðinu" árið 2000 "Hringbrautin kemur fyrir á öllum leggja-listunum nema einum (Alvarleikastuðull), og er alltaf í fimm efstu sætunum. Mjög mikil umferð er um götuna og hefur hún flest árleg óhöpp allra leggja og fjórðu og fimmtu hæstu óhappa- og slysatíðnirnar." Ps. það hafa orðið alvarleg slys á Hringbraut síðan 2000. Einnig kom fram hjá lögreglu á íbúðafundi  að 80% allra slysa gangandi væru við gangbraut.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information