Vistvænt svæði á Hagatorgi

Vistvænt svæði á Hagatorgi

Hvað viltu láta gera? Búa til aðstöðu á Hagatorgi fyrir fólk. Gróðursetja tré og runna, blómaker, mynda skjól, setja upp bekki og borð, vallarstæði fyrir petanque, og eitthvað fleira í þeim dúr. Gera lítinn almenningsgarð í miðju hverfinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Í dag er torgið auðn ein með stórt listaverk í miðjunni. Þetta er flennistórt landssvæði í miðju eins þéttbýlasta hverfis á Íslandi. Það er fullkomin sóun að sé nú aðeins notað af bílum til að keyra í hálfhringi. Gerum hverfið okkar vistvænna og búum til fleiri vistvæn svæði.

Points

Allt er betri nýting á þessu svæði en torgið sem þarna er núna. En er þetta ekki í raun bara míní-útfærsla á hugmyndinni sem einnig er hér á gáttinni, um að taka torgið í burtu og útbúa í staðinn samfellt svæði fyrir nám og leik: https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/28649

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin var sameinuð við hugmynd sem heitir “Garður í stað götu: Bylting fyrir börn og mannlíf”. Nánari útfærsla á hugmynd verður aðlöguð til að passa að reglum verkefnisins og kosið verður um svipaða útfærslu og í Hverfið mitt 2019. Fyrsta áfanga var kosið um 2018 og hefur verið framkvæmdur. Næsti áfangi felur í sér framkvæmdir innan Hagatorgs, m.a. lagningu göngustíga, koma fyrir bekkjum, gróðursetning o.þ.h. Hinum tæku hugmyndunum verður stillt upp á fundi íbúaráðs Vesturbæjar á þriðjudaginn næstkomandi þann 30. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/446160169797749/. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information