Opna sundlaugina við Breiðholtsskóla fyrir almenning

Opna sundlaugina við Breiðholtsskóla fyrir almenning

Hvað viltu láta gera? Ég vil láta byggja við sundlaugina við Breiðholtskóla og leyfa íbúum hverfisins að njóta hennar. Þetta getur verið lítið krúttlegt laugarsvæði með nokkrum heitum pottum, jafnvel nuddpotti, og buslulaug fyrir börn. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikil sundlaugarmenning er á Íslandi og gott að hlýja sér í heitum potti á köldum vetrardegi. Ef laugarsvæðið við Breiðholtsskóla væri stækkað lítillega og opnað almenningi myndu íbúar bakkanna hafa aðgang að laugarsvæði í hæfilegri göngufjarlægð frá heimili sínu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um eiginlega nýframkvæmd að ræða, hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað og sundlaug er á lóð og umráði Breiðholtsskóla. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information