Hvað viltu láta gera? Hafa fleiri ruslatunnur í hlíðunum, alla vega eina í hverri götu. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mjög pirrandi að þurfa að labba í fimm mínútur með hundaskítspoka vegna þess að rusla tunnur eru bara hjá strætóskýlum og á Klambratúni.
Sammála með of fáar ruslatunnur í Holtunum. Eins hefur þeim verið fækkað á Klambratúni sem er slæmt. Á góðviðrisdögum flæðir út úr tunnunum á Klambratúni og þyrfti því frekar að fjölga þeim þar.
Sammála með nánast algjöran skort á ruslatunnum í Holtunum. Þarft að fara á Hlemm til að finna ruslafötu og því veigrar maður sé við að kippa með sér rusli sem maður myndi gera ef það væri tunna nálægt (ekki bara hundapokar)
Vantar ruslutunnur í Norðurmýri og síðan hefur ruslatunnum verið fækkað á Klambratúni.Og ég held að það vanti í allt hverfið
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation