Götuþrengingar vegna hraðaksturs í Drekavogi

Götuþrengingar vegna hraðaksturs í Drekavogi

Hvað viltu láta gera? Ég ásamt fleirum viljum láta setja upp amk tvær-þrjár þrengingar við Drekavog til að draga úr hraðakstri upp og niður götuna. Við myndumvilja fá þrenginu þar sem komið er úr Njörvasundi og beygt upp drekavoginn og svo viljum við líka þrenginu við gangbrautina við Skipasundið og einnig við Efstasundið. Kv Íbúar með börn í Drekavogi Hvers vegna viltu láta gera það? Við viljum láta gera þetta því það virðist vera sem Njörvasund og Drekavogur séu götur sem fólk notar sér til að “stytta” sér leið og losna við umferðaljós á langholtsvegi/skeiðarvogi. Maður hefur oft orðið vitni af akstri langt yfir leifðum hámarkshraða hér í götunni. Það hefur stundum munað mjóu að börn verði fyrir bílum á gangbrautinni því bílum er keyrt svo hratt að þeir ná ekki að hægja á sér við gangbrautina

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information