Brákarmarkaður + Lokun á Skipasundi & Efstasundi við Brákars

Brákarmarkaður + Lokun á Skipasundi & Efstasundi við Brákars

Hvað viltu láta gera? Ég vil minnka gegnumakstur í Skipasundi, Efstasundi og Drekavogi og draga úr hraðakstri í þeim götum með prufulokun á götunum við Brákarsund. Hraðinn er gífurlegur í götunni og oftar en ekki virðast þetta vera einstaklingar sem eru að stytta sér leið í gegnum göturnar. Börnin okkar hafa verið hársbreidd frá slysi vegna glæfraaksturs. Samhliða felur hugmyndin í sér að leggja grunn að laugardagsmarkaði í Brákarsundi yfir sumarið þar sem borgin myndi leigja út söluborð frá Langholtsvegi og niður í Sæviðarsund. Þetta myndi gera hverfið að spennandi áfangastað innan borgarinnar sem myndi auka eftirspurn eftir verslun og þjónustu í hverfinu. Hverfismarkaðir skapa einstaka félagslega upplifun sem nágrannar geta notið saman. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að auka öryggi og gæða hverfið lífi

Points

Lokun á Sundunum þarna væri til mikilla bóta fyrir íbúa, hvernig sem þau kjósa ad ferðast.

Setja frekar hraðamyndavél.

Það yrði mjög skemmtilegt að setja upp markað í Brákarsundinu. Þar mætti selja ýmis konar handverk, sultur, heimaræktað grænmeti o.fl. Börnin gætu einnig sett upp hlutaveltu með einhverju áhugaverðu og margt fleira mætti gera 😀

Frábær hugmynd. Myndi auka öryggi þeirra fjölda barna sem þarna fara í gegn daglega í sína skóla og mynda skemmtilega hverfisstemmningu.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information