Ærslabelgur á grasblett fyrir framan Háskólabíó

Ærslabelgur á grasblett fyrir framan Háskólabíó

Hvað viltu láta gera? Setja upp Ærslabelg (trampólíndýnu) á grassvæði milli Háskólabíós og Hagatorgs Hvers vegna viltu láta gera það? Hefur sýnt sig að þetta er mikið notað í nágrannasveitarfélögum, á tjaldsvæðum og út um allt land. Aukið líf og hentar breiðum aldurshópi. Yrði rétt hjá Hagaskóla og Frosta sem er líklega sá hópur sem myndi nota mest. Lof tekið úr kl 22 að kvöldi svo ekki þarf að hafa áhyggjur af truflun seint á kvöldin og yfir nóttina

Points

Þetta er nú kannski ekki mest aðlaðandi staðurinn, en öðru myndi gegna ef hugmynd https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/28649 um að skipta hringtorginu út fyrir stórt samhangandi svæði fyrir leik og nám. Þá væri frábært að hafa ærslabelg á þeim reit (hinumegin við götuna sem þá væri ekki lengur hluti af hringtorgi).

Finnst ærslabelgur mjög góð hugmynd en þetta er skelfilegur staður fyrir hann! Frekar hjá vesturbæjarlaug t.d.

Góð hugmynd, afleitur staður

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og sameinuð við aðrar hugmyndir um ærslabelgi þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Staðsetningar sem voru lagðar fram í hugmyndum verða skoðaðar m.t.t. ofangreindra þátta. Hinum tæku hugmyndunum verður stillt upp á fundi íbúaráðs Vesturbæjar á þriðjudaginn næstkomandi þann 30. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/446160169797749/. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information