Moltutunnur um allt hverfið

Moltutunnur um allt hverfið

Hvað viltu láta gera? Setja upp moltutunnur á fjölmörgum stöðum í hverfinu t.d. leikvöllum, grenndargáma, í hverfiskjörnum, við allt húsnæði Reykjavíkurborgar og á fleiri stöðum. Starfsfólk Reykjavíkurborgar myndu síðan sjá um umhirðu og tæmingu líkt og núna er með ruslatunnur og annað. Hvers vegna viltu láta gera það? Vitundarvakning og hjálpar borgarbúum í fyrstu skrefum í átt að moltugerð. Ýtir fólki síðan út í að gera þetta sjálft

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Það er áformað hjá borginni að fara safna lífrænum úrgangi sérstaklega og er það verkefni í farvegi annars staðar í borgarkerfinu á tilraunastigi. Því er ekki hægt að kjósa um hugmyndina að svo stöddu. Einnig felur hugmyndin í sér verulegan rekstrarkostnað og fellur því ekki að reglum verkefnisins Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Moltutunnur um allt hverfið myndi minnka mjög mikið það sem fer í tunnurnar. Ég bý ein og fylli eina ruslafötu á mánuði. Lífrænt fer í mína garðmoltutunnu, plasti, sem er fyrirferðarmesta ruslið, fer í plastgám, pappír í bláu tunnuna og þá er svona lítið eftir fyrir gráu tunnuna!

Þetta er löngu tímabært verkefni. Ég vissi ekki af þessari tillögu og lagði því fram aðra sömu gerðar: https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/39115?fbclid=IwAR2wOtTZOLTGuMzVQ2MbcMPW4WJ8mhUJ-XFTOKUvnwzg_yCFGEU7yTCcHsk

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information