Hljóðmön meðfram Ártúnsbrekku

Hljóðmön meðfram Ártúnsbrekku

Hvað viltu láta gera? Ég bý ásamt fleirum íbúum í Urriðakvísl 110 Reykjavík. Gatan liggur meðfram Ártúnsbrekkunni og það segir sig sjálft að það er gríðarlegur umferðaþungi í Ártúnsbrekkunni. Ég og við íbúar Urriðakvíslar viljum strax fá hljóðmön frá Kartöflugeymslunni og að bensínstöðinni N 1 þetta myndi gjörbreyta umferðahávaða og vera visvænna á allan hátt fyrir okkur íbúanna. Góðar kveðjur með von um góð viðbrögð. Hvers vegna viltu láta gera það? Gríðarleg þörf á bættum lífskjörum v/umferðar upp og niður Ártúnsbrekku.

Points

Nauðsynlegt til að minnka hljóðmengun sem er mikil í þeim hluta Ártúnsholtsins sem er næstur Miklubrautinni. Myndi bæta gæði búsetu til muna. Kv. Íbúi í Álakvísl.

Ég bý við Álakvísl og er hús mitt við hliðina á N1. Ég tel þörf á hljóðmön upp alla Ártúnsbrekkuna en ekki bara að N1. Það að búa við þessa mikla umferðagötu skerðir lífsgæði og svefn okkar sem búum við þessa stóru umferðagötu. Það er löngu komin tími til aðgerða.

Það er óbærilegur hávaði og mengun sem berst yfir Urriðakvísl. Bakgarðar í Urriðakvísl 6-12 eru ónothæfir vegna hávaða en þar heyrist ekki mælt mál vegna þungs umferðarðniðs.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information