Dýfingarlaug úti við djúpulaugina í Grafarvogslaug

Dýfingarlaug úti við djúpulaugina í Grafarvogslaug

Hvað viltu láta gera? Setja upp dýfingarlaug á lausu svæði við enda djúpulaugar sundlaugarinnar. Það er nýja litla laug þar sem dýpið er nóg fyrir dýfingar og hægt að leika sér. Hafa þar ýmsar útfærslur af stökkbrettum s.s. trampólín, stökkbretti við bakka, í metershæð og allt upp í 3-4 metra hæð. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er komin þörf á að fá skemmtun af þessu tagi við sundlaug í borginni. Fyrir börn, unglinga og fullorðna er þetta snildin ein og mikið fjör. Þetta er í raun einföld framkvæmd og hagkvæm í framkvæmd. Laust er svæði á sundlaugarsvæðinu sem hentar fyrir dýfingarlaug.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til ÍTR og/eða viðkomandi sundlaugar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Veðurfar á Íslandi býður ekki uppá dýfingar úti, auk þess væri nær að byggja inni kennslulaug fyrir skólasund.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information