Fuglafriðland i grafarvogi

Fuglafriðland i grafarvogi

Hvað viltu láta gera? Útbúa eyjur / fuglaathvarf i grafarvoginum þar sem gömlu rafmagnsstauraundirstöðurnar eru. Sú syðri yrði eyja, kannski 10m i þvermal, brjotaniður steypuna og bæta víð sprengigrjóti og ýta saman jarðveg, grass og skjol af grjóti. Að norðan yrði það tangi/eyja, aðgengilegt á fjöru. Sama má sjá fyrir sér að forma meira tangann sem er innst við lækinn og vel synilegur á fjöru. Hvers vegna viltu láta gera það? Styðja enn frekar við fuglalíf og skapa athvarf / varplendi í borginni.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er skilgreint sem hverfisverndarsvæði eða er friðlýst svæði. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þetta er frábær hugmynd! Ég set þó spurningamerki við aðgengi á fjöru þar sem það skapar hættu á að kettir eigi greiðari aðgang að varplanndi?

Ég sé ekki hvaða tilgangi þetta ætti að þjóna til að auðga mannlíf í Grafarvogi. Og best að leyfa Grafarvoginum að njóta sín eins og hann er.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information