Endurhanna og gera nýja göngustíga í Bakkahverfi

Endurhanna og gera nýja göngustíga í Bakkahverfi

Hvað viltu láta gera? Það þarf að endurhanna göngustíga í hverfinu þ.s. þeir eru orðnir úr sér gengnir og gamlir og þjóna ekki nógu vel tilgangi sínum, m.t.t. þeirrar umferðar sem er á þeim í dag. Hvers vegna viltu láta gera það? Stígarnir eru orðnir jafn gamlir og hverfið (50+ ára) og margir fengið lítið sem ekkert viðhald. Þeir eru því margir orðnir slitnir, holóttir og hæðóttir. Þegar þeir voru gerðir var eingöngu gert ráð fyrir gangandi umferð um þá. Í dag eiga þeir að þjóna gangandi, hjólandi og keyrandi umferð. Annað hvort þarf að breikka þá eða útbúa sérstaka hjólastíga, þ.s. þessi mismunandi umferð um þá fer ekki saman. T.d. eru gangandi vegfarendur eru oft í stórhættu vegna ýmiss konar vélknúinna ökutækja sem fara mjög ógætilega um þá.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information