Laga göngustíginn milli Sigtúns og Engjateigs við Gullteig.

Laga göngustíginn milli Sigtúns og Engjateigs við Gullteig.

Hvað viltu láta gera? Síðan ég flutti í hverfið fyrir 8 árum hefur þessi stígur verið illfær stóran hluta ársins vegna hönnunargalla. Afvötnun er ekki í lagi þannig að á ákveðnum stað safnast alltaf fyrir vatn yfir allan stíginn. Þetta er lítil framkvæmd að laga en hefur ekki verið gerð einhverra hluta vegna. Hvers vegna viltu láta gera það? Af því það er lítið mál að laga þetta en stígurinn er illfær eftir rigningar eins og staðan er núna.

Points

Amma mín (frumbyggi í Sigtúni) hefur hringt reglulega út af þessum stíg í 10+ ár. Svör borgarinnar ávallt á þá leið að það væri verið að bíða eftir að framkvæmdir hæfust á gamla Blómavals-reitnum. Það er hins vegar nokkuð ljóst að ekkert er að gerast þar og á meðan er stígurinn ýmist pollur/drullusvað eða skautasvell. Amma er núna 93 ára og fer krókaleið kringum UMFÍ til að komast leiðar sinnar með göngugrindina. Þetta er eitthvað sem ætti ekki að þurfa að kjósa um heldur bara framkvæma strax.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information