fleiri bekki fyrir fólk til að setjast niður.

fleiri bekki fyrir fólk til að setjast niður.

Hvað viltu láta gera? fá bekki og ruslafötur ... laga göngustíga Hvers vegna viltu láta gera það? til þess að auðveldara sé að ganga og hvíla sig.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Grafarvogs á mánudaginn næstkomandi þann 22. mars milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/232474641944391. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það þarf að koma með fleiri bekki alls staðar i hverfinu. Það eru margir úti að ganga núna og fólk þarf að geta sest niður öðru hverju . Veit að stórir hópar ganga t d frá Borgum út frá Spöng . Það vantar lika að það sé saltað og sandað á göngustígum. Ruslafötur mættu lika vera víðar. Lagið þetta nú snöggvast .

Sammála með ruslaföturnar. Það er a.m.k. leitun að þeim í Borgahverfinu.

Kæri hugmyndahöfundur Þín hugmynd var valin á uppstillingarfundi til þess að vera á kjörseðli hverfisins í kosningunni í Hverfið mitt næsta haust. Uppstilling kjörseðila fyrir kosningarnar fór fram á fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Nánari upplýsingar hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og niðurstaðan er að margar frábærar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að þín hugmynd verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hugmyndina fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information