Breikka/stækka göngustíga Gullinbrú og Grafarvoginn

Breikka/stækka göngustíga Gullinbrú og Grafarvoginn

Hvað viltu láta gera? Breikka göngustíga i voginum og gullibrúnni. Gera ráð fyrir öllum þessum faratækjum sem fólk er farið að nota þ.e rafhjólunum, venjulegu hjólunum, vespunum, rafhlaupahjólum, og öllu öðru sem er i boði. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikilvægt er að hægt sé að ganga óhultur á ganstígum án þess að þurfa alltaf að vera að fylgjast með hvort að eitthvað faratæki sé að koma þeysandi að manni. Þessi farartæki geta farið hratt og oft er eldra fólki, viðkvæmum og fólki með barnavagna varla óhult. Stígurinn upp gullinbrúnna og vogurinn er fjölfarinn ekki bara af grafarvogsbúum heldur lika af þeim sem nota þessi farartæki og leggja leið sína í grafarholtið og mosfellsbæinn.

Points

Mjög mikilvægt. Umferð orðin það mikil að þörf er að aðskilja hjólandi og gangandi umferð eins og gert er t.d. í Fossvoginum og Ægissíðunni.

Tek heilshugar undir þetta, við þetta vil ég bæta að á köflum er þessi stígur orðinn mjög lélegur og þarfnast lagfæringar.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt og hugmyndin sprengir fjárhagsramma verkefnisins. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information