Undirgöng við Sæbraut

Undirgöng við Sæbraut

Hvað viltu láta gera? Gera undirgöng hjá Íslandsbanka húsinu, undir Sæbraut. Hvers vegna viltu láta gera það? Hefur sýnt sig að það er mjög vafasöm gangbraut yfir Sæbrautina á núverandi svæði. Væri mjög góð tenging frá Laugarneshverfinu yfir í laugarnestangann og áfram niður í miðbæ

Points

Góð hugmynd, eins og er þá er hvorki hægt að komast úr Túnunum né Laugarneshverfinu yfir á Sæbrautarstíginn eða Laugarnestangann nema að fara yfir gangbrautir þar sem bílar eru í algjörum forgangi með tilheyrandi loftmengun og hávaða.

👍🏼

Gönguljós eru stillt mjög í hag bílaumferð, þannig að biðtími gangandi er langur. Það er því freistandi að ganga yfir á rauðu. Þetta er skiljanlega hættulegt á 4ja akreina hraðbraut. Á reyndar við um gatnamót Kringlumýrarbraut og Sæbrautar einnig.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information