Grænt torg við lokun á Rauðalæk 32

Grænt torg við lokun á Rauðalæk 32

Hvað viltu láta gera? Hanna og gera lítið torg við götulokun í Rauðalæk 32 Hvers vegna viltu láta gera það? Í dag eru nokkur blómaker neðar í götunni sem loka henni. Það væri miklu betra að færa þessa lokun til þangað sem íbúarnir þar eru svo miklu sáttari við lokun. Það væri mikill sómi af því ef þarna væri fallegt einfalt grænt svæði sem gæti nýst stórri íbúagötu. Friður og hamingja um alla eilífð.

Points

Af því að þetta er enn mjög bráðabirgðaleft alltsaman eftir öll þessi ár

Lokunin er á fínum stað þar sem hún er og árið 2016 var kosið um að fegra lokunina og var það framkvæmt 2017.

Skrumskæling á annarri hugmynd sem er þegar komin inn. Endilega kjósið þessa niður og hina upp https://hverfidmitt-2020-2021.betrireykjavik.is/post/28755?fbclid=IwAR0neUheqyetSgrIOnJlKVO-xfrSVQTdN6BUnZoFtHhHXDw9VmRlTzpCSLE

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information