Laga gangstéttar í Langarima

Laga gangstéttar í Langarima

Hvað viltu láta gera? Laga gangstéttar í Langarima, sem sumar hverjar eru orðnar ansi þreyttar. Hvers vegna viltu láta gera það? Hefur verið slæmt ástand á þeim í einhver ár núna, kominn tími á smá upplyftingu.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/ Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þarft verkefni en er hluti af "viðhalds" verkefnum borgarinnar. Á ekki að þurfa að eyða úr þessu "budgeti" í venjubundin viðhaldsverkefni borgarinnar.

Ég þakka Ólafi Sigurðssyni fyrir sína athugasemd sem er góð og gild. En minni á að á sínum tíma var fjármagn til betri hverfa tekið úr viðhaldssjóðum RVK-borgar, veit svo sem ekki hvernig þetta er í dag. Ég lít á þetta verkefni sem svo að við eigum að geta haft áhrif á það sem við viljum, hvort sem um sé að ræða ný verkefni eða forgang viðhaldsverkefna. En það er bara mín skoðun.

Það er skandall að vita til þess að það hafi verið greitt fyrir brask. Steypt eða malbikað beint á jörðina á Íslandi er ávísun á frostsprunginn stíg. Það ætti að fara fram á endurgerð eða lagfæringu á kostnað verktaka.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information