Miklabraut, Klambratún o.fl.

Miklabraut, Klambratún o.fl.

Hvað viltu láta gera? Ég vil sjá miklu meiri trjágróður meðfram Miklubraut alveg að Kringlumýrarbraut og í raun flest sem stuðlar að betri hljóðvist og loftgæðum fyrir íbúa Hlíðahverfis. Það mætti setja hljóðmön meðfram blokkunum við Stigahlíð og það mætti vera auðveldara að komast yfir Miklubrautina til móts við strætóstoppistöðina Hlíðar. Það mætti setja hita í fleiri göngustíga og bæta gangstéttir viða og bæta við fleiri borðum og leiktækjum á Klambratún sem er gríðarlega vinsælt útivistarsvæði. Svo væri gaman að fá almennilega útisundlaug í tengslum við Ylströndina. Hvers vegna viltu láta gera það?

Points

Alveg sammála öllu sem þú nefnir Árný en þetta eru fimm hugmyndir í einni. Held það væri gott að senda þær inn aðskildar - líklegra að þær komi til framkvæmda þannig held ég.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Miðborgar og Hlíða á fimmtudaginn næstkomandi þann 20. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/950529515775273/. Þín hugmynd hefur verið aðlöguð þar sem upprunalega hugmyndin var margþætt. Sá hluti hugmyndar sem komst áfram felur í sér að bæta við bekkjum og leiktækjum á Klambratún. Aðrir hlutar hugmyndar er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Kæri hugmyndahöfundur Þín hugmynd var valin á uppstillingarfundi til þess að vera á kjörseðli hverfisins í kosningunni í Hverfið mitt næsta haust. Uppstilling kjörseðila fyrir kosningarnar fór fram á fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Nánari upplýsingar hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og niðurstaðan er að margar frábærar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að þín hugmynd verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hugmyndina fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Góð hugmynd en af hverju að stoppa við Kringlumýrarbraut. Ég hef sett inn aðra tillögu hér um að planta trjám meðfram Kringlumýrarbraut en auðvitað ætti hugmyndin hreinlega að vera að planta trjám meðfram öllum stórum umferðaæðum í boprginni þar skm því verður við komið. Kostar lítið og er einfalt í framkvæmd en er mikilvægur þáttur í kolefnisjöfnuninn en og dregur um leið úr hljóðmengun.

Kæri hugmyndahöfundur, Til hamingju hugmyndin þín hlaut kosningu í Hverfið mitt 2021. Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022, niðurstöður kosninga má sjá á www.Hverfidmitt.is. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is/. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information