Göngubrú milli Gufunesbæjar yfir Strandveg að Miðgarði

Göngubrú milli Gufunesbæjar yfir Strandveg að Miðgarði

Hvað viltu láta gera? Setja upp göngubrú milli leiksvæðis Gufunesbæjar yfir Strandveg að Miðgarði við Gylfaflöt. Hvers vegna viltu láta gera það? Það vantar að vera hægt að koma beint að miðjum Gufunesbæ og leiksvæði þess gangandi og hafa möguleika á því að komast yfir mikla umferð Strandvegar.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Það vantar örugga leið fyrir börn úr öllum hverfum Grafarvogs til að komast í Gufunesbæ. Þessi leið er stórhættuleg fyrir börn úr Folda og Rimahverfinu

... eru ekki undirgöng heppilegri?

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information