Lengja hljóðmön meðfram Gullinbrú

Lengja hljóðmön meðfram Gullinbrú

Hvað viltu láta gera? Hækka og lengja hljóðmön meðfram Gullinbrú, frá Stórhöfða niður að brú. Einnig gróðursetja meira af trjám meðfram allri möninni. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að minnka hávaða í hverfinu frá umferð um Gullinbrú.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Klára hljóðmön meðfram Gullinbrú að Fjallkonuvegi sem byrjað var að reisa árið 1998. Mikill hávaði frá umferð um Gullinbrú berst inn í Folda og Hamrahverfið.

Þörf og góð hugmynd

Virkilega þarft verkefni. Núverandi hljóðmön liggur aðeins meðfram Gullinbrú að hluta og gerir því takmarkað gagn þess vegna, Einnig mætti gróðursetja fleiri tré við núverandi hljóðmön til að draga enn frekar úr hávaða

Hækka mönina báðum megin alla leið yfir brúna að Fjallkonuvegi Planta meira af trjám til að draga úr hávaða frá umferð

Löngu tímabært verkefni og hreinlega ótrúlegt að það skuli ekki vera löngu búið að efla hljóðmönina með lengingu og trjám. Umferðaræðin hérna framhjá hverfinu veldur ónæði og mengun. Ég bý á 3. hæð í Básbryggju 13 og það er greinilegt að hæðin á hljóðmöninni er ekki dekka umferðarhávaðann upp á 3. hæð. Mæli með því að hljóðmönin verði lengd að Gullinbrú og falleg tré verði gróðursett upp á hljóðmöninni sjálfri.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information