Hjólabrettarampur í neðri hluta Seljahverfis, t.d. nálægt ÍR

Hjólabrettarampur í neðri hluta Seljahverfis, t.d. nálægt ÍR

Hvað viltu láta gera? Tel ástæðu til að hlúa betur að börnunum í hverfinu sem hafa áhuga á útiveru með því að bæta við hjólabrettarampi í neðri hluta Seljahverfis. Til dæmis væri hægt að staðsetja hann nálægt íþróttasvæði ÍR. Hjólabrettarampar nýtast bæði fyrir hlaupahjól og hjólabretti. Hvers vegna viltu láta gera það? Hjólabrettarampar eru vinsælir á meðal barna í hverfinu

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin er ekki gerleg eða framkvæmanleg á umræddu svæði og/eða svæði er ekki á borgarlandi. Það er önnur áþekk hugmynd sem komst áfram í uppstillingu sem ber heitið „Gera upp brettagarðinn við Jafnasel“ og felur í sér að stækka og endurbæta hjólabrettagarð sem er staðsettur í Seljahverfi. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Þessa aðstöðu vantar sárlega á fleiri stöðum en við Jaðarsel.

Væri frábært að fá hjólabrettaramp við íþróttasvæði ÍR. Mikill áhugi í hverfinu á jaðarsporti og hvetur þetta unga krakka, sem eru ekki endilega í öðrum íþróttum, til aukinnar útiveru.

Það væri frábært að fá hjólabrettaaðstöðu nálægt ÍR. Það eykur hreyfingar- og útivistarmöguleika svæðisins og styður við jaðarsportin, sem eru að verða æ vinsælli meðal ungu kynslóðarinnar.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information