Frisbígolf seljadal

Frisbígolf seljadal

Hvað viltu láta gera? Láta hugsa betur um frisbígolfvöllinn og slá grasið og þess háttar. Einnig væri rosa gaman að lengja völlinn og bæta við fleiri holum. Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að vekja meiri athygli á folf íþróttinni og ýta undir útiveru.

Points

endilega slá grasið oftar, þetta er eins og að vera kominn út á land stundum, maður kastar disk og all grasið gleypir bara diskinn og hann er horfinn

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hugmyndin er ekki framkvæmanleg á umræddu svæði þar sem ekki er pláss fyrir fleiri körfur. Hluti hugmyndar fer áfram sem ábending til hverfastöðvar sem sér um viðhald á vellinum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information