Tré á umferðareyju við Hringbraut

Tré á umferðareyju við Hringbraut

Hvað viltu láta gera? Planta trjám á umferðareyju við Hringbraut. Áþekka lausn er að finna í Lækjargötu. Þar er einnig 2+2 gata og trjám er plantað á milli aksturstefna. Sjá mynd https://imgur.com/a/2qgEfJe Hvers vegna viltu láta gera það? Þetta myndi prýða götuna. Minnka hávaða og ryk og lækka umferðarhraða.

Points

Súlublæöspin er fullkomin fyrir svona

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Reykjavíkurborg og Vegagerðin ætla að vinna tillögur að endurbótum á Hringbraut í heild sinni um Vesturbæinn þar sem áhersla verður lögð á bætt umferðaröryggi og vistlegra göturými. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Verður hlýlegra yfirbragð. Þetta er allt mjög grátt núna.

Þarna vantar meiri lit. Svo virðist sem umferðaröryggi aukist líka um leið.

Að setja tré niður þarna myndu breyta alveg “vibeinu” þarna í eitthvað mun huggulegra.

frábær hugmynd. Myndi bæði loft- og hávaðahreinsa götuna og dragar úr þeirri skynjun að Hringbrautin sé hraðbraut.

Ég er alveg til í meiri lit

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information