Djúpgámar á grendarstöð við Dalskóla

Djúpgámar á grendarstöð við Dalskóla

Hvað viltu láta gera? Setja djúpgáma á grendarstöð við Dalskóla í stað hefbundinna grendargáma Hvers vegna viltu láta gera það? Umhverfi djúpgáma er mun snyrtilegra heldur en hefðbundnir grendargámar auk þess eru þeir mun auðveldari í umgengni og notkun

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin krefst breytingar á deiliskipulagi og skipulagsferill hugmyndarinnar færi út fyrir tímaramma verkefnisins. Fjölgun og staðsetning djúpgáma er í ferli annars staðar í borgarkerfinu og verður þessari hugmynd komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Hugmynd er að hluta til sameinuð við hugmyndina "Betri grenndarstöð við Ingunnarskóla". Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedils-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-almennar-upplysingar-2020-2021.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information