Grænuhlíð verður vistgata

Grænuhlíð verður vistgata

Hvað viltu láta gera? Lækka hraðann í Grænuhlíð eða þrengja götuna, bæta lýsingu og setja upp skilti sem sýnir hraðan sem fólk ekur á. Hvers vegna viltu láta gera það? Hraðakstur er alltof algengur í götunni, bæði hjá íbúum götunnar, foreldrum og starfsfólki Björtuhlíðar og fólki í hverfinu að stytta sér leið. Það er bara gangstétt öðrumegin og þurfa því allir sem búa oddatölumegin að fara yfir götuna til að komast á gangstétt. Það er mikil umferð gangandi vegfarenda sem eru td að koma út strætó við Miklubraut til að komast inn í hverfið, leikskólabörn á leið á Björtuhlíð og fólk að koma frá Kringlumýrabraut.

Points

Ég er íbúi við Grænuhlíð og er þessu algjörlega sammála. Það er ein hraðahindrun við götuna og er hún fyrir miðju götunar sem þýðir að bílar geta gefið hressilega í eftir að hafa farið yfir hana ef þeir þá slá af hraðanum yfirleitt. Það mætti líka velta því upp hvort það gæti verið sniðugt að gera götuna að einstefnugötu.

Hjá þessari einu gangbraut í Grænuhlíð leggja bílar mjög oft alveg upp við gangbrautina oddatölumegin eða jafnvel aðeins upp á hana svo maður á erfitt með að sjá hvort það sé einhver að koma út á gangbrautina þegar verið er að keyra til austurs. Þetta getur verið stórhættulegt og klárlega eitthvað sem þarf að skoða að mínu mati.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information