Battavöll á tún milli Boðagranda og Grandavegs

Battavöll á tún milli Boðagranda og Grandavegs

Hvað viltu láta gera? Setja battavöll með gervigrasi á túnið milli fjölbýlishúsana á Boðagranda og Grandavegs 45, oftast kennt við spýturóló. Hvers vegna viltu láta gera það? Fyrir er tún og eitt mark. Túnið er illa farið og svæðið í kringum markið er eitt moldarsvað. Svæðið er í raun kjörið fyrir battavöll sem myndi lífga upp á svæðið og bæta nýtingu þess til muna. Aðstaða til knattspyrnuiðkunnar í Vesturbæ Reykjavíkur hefur verið ábótavant og þarna er tækifæri til að svala knattspyrnuþorsta í hverfinu sem er umtalsverður.

Points

Mér finnst að það eigi að takmarka notkun gervigrass, sem er plastefni sem mylur af sér microagnir. En væri ekki hægt að velja annað undirlag?

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem battavöllur er ekki framkvæmanlegur á umræddu svæði. Hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu og skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information