Bílastæði

Bílastæði

Hvað viltu láta gera? Vantar tilfinnanlega bílastæði fyrir ferðavagna þeir eru í mikilli tilvistarkreppu þyrfti að vera afmörkuð stæði, það er orðið algengt í hverfum en ekki í bryggjuhverfinu Hvers vegna viltu láta gera það? Bílastæðin úti er ekki nógu mörg og þetta skapar bara árekstra milli íbúa.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Fjölgun bílastæða er stefnumál sem stöðugt er til umfjöllunar og úrvinnslu. Skipulagsferli hugmyndarinnar er of langt fyrir tímaramma verkefnisins sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Uppsátur er svæði þar sem bátar eru geymdir á landi. Kannski er betra að tala um uppsátur en malbikuð bílastæði, en hugmyndin er góð, það vantar stað til að geyma báta og ferðavagna í hverfið

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information