Betri tenging við Rauðhóla

Betri tenging við Rauðhóla

Hvað viltu láta gera? Gera göngustíg að Rauðhólum og brú yfir Bugðu/Hólmsá á móts við Hólmvað. Hvers vegna viltu láta gera það? Tengja betur Norðlingaholt við Rauðhóla og auka útivistar möguleika í hverfinu

Points

Náttúruverndarsamtök Íslands: "Votlendi og flæðilönd við ána Bugðu eru mikilvæg vegna fjölbreytts lífríkis sem er á hröðu undanhaldi í borginni. Á það við bæði um gróður, fugla og annað dýralíf. Þar sem Bugða er og verður við jaðar byggðar í Reykjavík er hún einnig mikilvæg fyrir fugla og annað dýralíf handan byggðarinnar, m.a. í friðlandi Rauðhóla, og mikilvægt er að ganga ekki á áhrifasvæði árinnar frekar en orðið er." Brú yfir Bugðu og umferð um flæðilandið truflar fuglalíf.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er í uppbyggingu og/eða breytingar fyrirhugaðar á komandi árum og því ekki tímabært að kjósa um að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information