Endurnýja leikvöll bakvið Teigasel 9-11

Endurnýja leikvöll bakvið Teigasel 9-11

Hvað viltu láta gera? Endurnýja leikvöll bakvið Teigasel 9-11 Hvers vegna viltu láta gera það? Núverandi leikvöllur er í niðurníðslu og löngu kominn tími til að lagfæra og endurbæta.

Points

Reyndar á borgin ekki þennan garð heldur íbúar í Teigaseli og Strandasel 9-11. En ef borgin vill láta laga þetta leiksvæði og byggja það upp þá er það bara hið besta mál. Það má líka færa rök fyrir því afhverju borgin ætti að sjá um þetta svæði og garðinn allan ef út í það er farið því nánast allir sem búa í nágrenni þessa garðs nota hann til útivistar, hvort sem krakkar eru að róla og renna sér eða spila fótbolta á sparkvellinum.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er ekki á lóð Reykjavíkurborgar heldur er um húsfélagsmál að ræða. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information