Endurbætur á lóð Vesturborgar

Endurbætur á lóð Vesturborgar

Hvað viltu láta gera? Taka lóð leikskólans í gegn með tilliti til betri nýtingar hennar til frjáls leiks. Sjá til þess að hálkumyndun skerði ekki aðgengi að inngöngum, bæta lýsingu á lóðinni, auka svæði til frjáls leiks og hlaupa, taka kartöflugarð leikskólans í gegn og bæta í með aðstöðu fyrir fjölbreyttari ræktun, yfirfara/skipta út leiktækjum með tilliti til opins leiks og sjá til þess að stærri hluti lóðarinnar sé heppilegur til leiks. Hvers vegna viltu láta gera það? Kominn er tími til að taka lóð leikskólans Vesturborgar í gegn. Aðgengi að leikskólanum er slæmt yfir vetrartímann sökum hálkumyndunar, jafnt innan lóðar sem í kringum leikskólann, lóðin er illa nýtt (einungis helmingur hennar er almennt nýttur til leiks - m.a. vegna hálku og lélegrar birtu) og svæði til frjáls leiks og hlaupa er lítið á þeim hluta lóðarinnar sem nýttur er.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndin þín snýr að vinnu sem þegar er áformuð á næstu misserum og er þ.a.l. í öðru ferli. Hún er því ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í það ferli. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information