Hringtorg við gatnamót Hallsveg og Víkurveg

Hringtorg við gatnamót Hallsveg og Víkurveg

Hvað viltu láta gera? Setja hringtorg á gatnamótin Hallsveg og Víkurveg Hvers vegna viltu láta gera það? Oft skapast mikil umferðarteppa fyrir þá sem eru á Hallsvegi og ætla inná Víkurveg í átt að Egilshöll. Sérstaklega um jólin þegar margir eru að koma eða fara úr Gufuneskirkjugarði. Oft er erfitt fyrir ökumenn(á Hallsvegi) að greina hvort bílar séu of nálægt eða nógu langt í burtu til þess að geta komist inn á Víkurveg. Í mörgum tilfellum er stutt í banaslys því ökumenn ná ekki að greina umferðarhraða hjá þeim sem eru að fara niður Víkurveg. Ekki viljum við bíða eftir alvarlegu slysi áður en það er farið í þessar framkvæmdir.

Points

Mjög fjölfarin gatnamót og mjög erfið

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Burtséð frá því hversu erfitt það er að keyra þarna um þá er þetta mjög fjölfarin gatnamót fyrir gangandi vegfarendur. Það eru undirgöng fyrir gangandi hér og þar, þetta eru gatnamót sem hreinlega eiga að vera með slíkum. Krakkar úr húsahverfi fara þarna um á leið til æfinga í Egilshöllinni og svo allir sem stunda hjólreiðar, hlaup eða göngur um þetta svæði eiga skilið að þurfa ekki að vera hrædd við hröðu umferðina sem fer þarna um.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information