Langholtsvegar. Lækka hámarkshraða í 30 km/klst

Langholtsvegar. Lækka hámarkshraða í 30 km/klst

Hvað viltu láta gera? Lækka hámarkshraða Langholtsvegar í 30 km/klst Hvers vegna viltu láta gera það? Umferðarþungi í götunni er töluverður og umferðarhraði mikill. Núverandi hámarkshraði er 50 km/klst en töluvert er um að sá hámarkshraði sé ekki virtur. Mikill fjöldi skólabarna fer yfir götuna á leið sinni í skólann. Þetta veldur óöryggi og ónæði fyrir vegfarendur og íbúa. Það yrði því mikil bót væri hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst í götunni.

Points

Það eru mörg börn á leiðinni í skólann þarna og það er bara óörrugt og óþarfi að hafa hámarkshraða svona hátt. Það þarf aldrei að keyra mjög langt á Langholtsvegi vegna þess Sæbraut er svo nálægt.

Mikil umferð gangandi og hjólandi vegfarenda á Langholtsvegi, sérstaklega börn. Áberandi hvað hámarkshraði er ekki virtur. Mætti lika setja upp hraðamyndavél, a.m.k. tímabundið.

Í stað þess að búa til nýja hugmynd um hjólastíga á Langholtsvegi þá er hér hugmynd að minnka hraðann með því að þrengja götuna og útbúa hjólastíg í stað málaðrar merkingar sem fáir treysta sér til að fara eftir.

Það er mikil og þung umferð á götunni, ekki síst milli Holtavegar og Álfheima og þarna er einn fjölmennasti grunnskóli landsins. Alveg nauðsynlegt.

Algjör nauðsyn, gatan er mikið notuð fyrir gegnum keyrslu, sem myndi þá vonandi minnka með lækkuðum hámarkshraða

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information