Miðbær í Grafarvogi

Miðbær í Grafarvogi

Hvað viltu láta gera? Taka frá fallegt svæði þar sem koma má fyrir leikvelli, kaffihúsi og veitingastað t.d. á fallegum flötum við Keldur, Gufunes, Korpúlfsstaði. Tengja þetta flottum listamönnum eða fallegum görðum. Víða mjög fallegt í Grafarvogi við Korpuánna, ströndina o.s.frv. Vantar að geta sest niður með kaffibolla og njóta á meðan krakkarnir leika sér í garðinum. Hvers vegna viltu láta gera það? Íbúar hafi stað til að koma saman á í göngufæri til að fara með fjölskyldu eða í rómó mat. Svipað og frábær miðbær Hafnarfjarðar með Krydd, A Hansen og tjörn. Garðabær með Mathúsið og Listasafnið. Vilt kannski rölta um þitt hverfi án þess að þurfa að fara í miðbæinn til þess. Egilshöll er ágæt en þar er meira pitza en ekki rómó dinner. Spöngin er verslun og skyndibiti. Vantar fallegan stað eins og Hellisgerði, Álafosskvosina.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessa verkefnis er of langur fyrir tímaramma verkefnisins Hverfið mitt og ekki er um eiginlega nýframkvæmd að ræða. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar og skoðað í samhengi við hverfisskipulag Grafarvogs. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information