Krossbraut á gatnamótum við Hringbraut/Hofsvallagötu

Krossbraut á gatnamótum við Hringbraut/Hofsvallagötu

Hvað viltu láta gera? Gera krossbraut, líkt og er á gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar á Kársesinu í Kópavogi. Rautt ljós er á alla umferð ökutækja á meðan gangandi fara yfir gatnamótin en með þessum breytingunum eru það gangandi vegfarendur eiga forganginn á gatnamótunum en ekki ökutæki. Hvers vegna viltu láta gera það? Eykur öryggi gangandi vegfaranda, einkum barna sem þurfa að krossa þessi gatnamót daglega til að komast í skóla. Þetta eru hættuleg gagnamót og hafa orðið þó nokkur slys þarna, því þykir mér upplagt að gera þessi gatnamór öruggari til að koma í veg fyrir fleiri og jafnvel alvarlegri slys.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Breytingar á gatnamótunum eru fyrirhugaðar. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd.

Slíka ljósastýringu má þegar finna í hverfinu, við Ægisíðu og Kaplaskjólsveg. Hefur að mínu viti heppnast vel. Svona fyrirkomulag er líka í allri Edinborg og hefur gefist vel.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information