Laga göngutíg milli Kleppsvegar og Sæviðarsunds/Holtavegar

Laga göngutíg milli Kleppsvegar og Sæviðarsunds/Holtavegar

Hvað viltu láta gera? Láta laga göngustíg sem leiðir frá Kleppsvegi 132 og yfir í Adam og Evu. Hvers vegna viltu láta gera það? Hann er illa farinn og rætur trjáa í kring hafa eyðilagt hann svo að erfitt er að fóta sig á honum. Til vinstri við göngustíginn (á mynd) er leiksvæði sem er mikið notað auk þess sem Adam og Evu verður bráðum breytt í leikskóla. Mikilvægt er að tryggja gott aðgengi þarna á milli.

Points

Það þarf að laga þennan göngustíg vegna þess að hann er stórhættulegur, sérstaklega á veturna.

Stígurinn er illa farinn og þarfnast lagfæringar

Nauðsynlegt að laga þennan stíg og hirða betur svæðið í kring. Þar er allt í órækt og rusli, óþarfi að þetta fari í niðurníðslu þar sem þetta getur verið fallegt grænt svæði og mikið farið þarna um. Ég fer mikið þarna um og hugsa um það í hvert sinn hve sorglegt sé um að líta.

Þessi göngustígur er mikil slysagildra þar sem hann er allur í sprungum, hættulegt að fara á hjólum og hlaupahjólum.

Mikið notaður stígur sem mætti breikka (hjólandi -gangandi) og setja bekki við stíginn. Hér eldist fólk

Stórhættulegur göngustígur sérstaklega á kvöldin maður sér ekkert þetta endar illa einn dagin hvort sem enhver dettur á hjóli þarna eða gangandi barn eða fullorðin

Þetta er stórhættulegur göngustígur, mjög ójafnt yfirborð.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information