Tengja ný gatnamót frá Arnarnesvegi inn á Fellin

Tengja ný gatnamót frá Arnarnesvegi inn á Fellin

Hvað viltu láta gera? Tengja gatnamót sem koma frá nýjum Arnarnesvegi beint inn á Fellin. Það væri t.d. hægt að gera það með hringtorgi. Hvers vegna viltu láta gera það? Til þess að stytta leið þeirra sem eiga erindi af Arnarnesvegi inn í þennan hluta Breiðholts og öfugt. Með núverandi fyrirkomulagi verður mikil krókaleið að keyra úr Breiðholtinu yfir í hvörfin, þetta skapar óþarfa umferð um Fellin og Breiðholtsbraut. Ökumenn þurfa að keyra í stórt U að óþörfu (sjá mynd). Þessi nýja tenging mun ekki auka umferð um Breiðholtið og Fellin þar sem enginn myndi nýta sér tenginua nema að eiga erindi um Breiðholtið (það er enginn að stytta sér leið í gegnum Breiðholtið).

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information