Stúkan í Laugardalslaug

Stúkan í Laugardalslaug

Hvað viltu láta gera? Laga og mála koma í fyrra horf. Hvers vegna viltu láta gera það? Þeir eru að grotna niður, liggja undir skemmdum og líta hræðilega út

Points

Stúkan er stórhættuleg eins og hún er

Rífa hana niður. Alltof mikill kostnaður að halda við hana. Enginn not á henni.

Alveg tilgangslaust að hafa stúku þarna, sérstaklega eftir að innilaugin var gerð að aðal keppnislauginni. Er yfir höfuð eitthvað keppt í útilauginni lengur?

Stúkan er kennileiti í borginni. Má finna henni nýjan tilgang án þess að eyðileggja hana?

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021 þar sem endurbætur eru fyrirhugaðar á Laugardalslaug og útisvæðinu þar á næstu árum og fer þessi hugmynd áfram sem ábending í þá vinnu. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information