Úlfarsfellsvegur

Úlfarsfellsvegur

Hvað viltu láta gera? Malbika Úlfarsfellsveg lækka hámarkshraðann og gera göngu/hjólastíg meðfram veginum. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikil umferð þarna og vegurinn hættulegur. Vegna þess hversu holóttur hann er. Það er mikil umferð á Úlfarsfellsveginum enda algjör paradís að kera þarna um og ganga. Hámarkshraðinn er 70 og vegurinn ónýtur. Mætti alveg lækka hámarkshraðann og setja stikur.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]

Mikil umferð um veginn.

Frábær hugmynd. Aðgengi að Hafravatni frá Úlfarsfelli er mjög ábótavant, í raun bara mögulegt á bifreið eða fyrir hugrakkan hjólreiðamann.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information